Raunir móta manneskjuna

Námskeið fyrir foreldra

Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar

Foreldrahlutverkið er eitt mikilvægasta og mest krefjandi hlutverk fullorðinsáranna. Sú þekking og færni sem gott uppeldi krefst er hvorki meðfædd né sjálfgefin og foreldrar standa oft frammi fyrir miklu magni misgóðra og jafnvel mótsagnakenndra ráðlegginga. Aðgengi að samræmdri, faglegri og hagnýtri uppeldisfræðslu getur því styrkt foreldra í hlutverki sínu og stutt við velferð barna og fjölskyldna.

Námskeiðið er hugsað sem forvörn sem allir foreldrar geta notið góðs af hvort sem vandi sé þegar til staðar eða ekki. Námskeiðið er ekki meðferð og ekki úrræði sem krefst þess að fyrir fram skilgreindur vandi, greining eða tilvísun liggi fyrir. Áherslan er að efla uppeldisfærni snemma og fyrirbyggja að erfiðleikar þróist fremur en að bíða þar til þörf verður á sértækari og kostnaðarsamari úrræðum.

Námskeiðið veitir foreldrum hagnýtar og gagnreyndar aðferðir til að:

• vinna saman að uppeldinu og setja sér skýr markmið,

• koma á fyrirsjáanlegum venjum og skýrum aldurshæfum reglum,

• hafa raunhæfar væntingar og gefa skýr skilaboð,

• laða fram æskilega hegðun með athygli, hrósi, leiðsögn og góðu fordæmi,

• setja börnum mörk og styðja þau í að þróa sjálfsstjórn og félagsfærni,

• styrkja jákvæð samskipti og samveru innan fjölskyldunnar,

• leysa verkefni í sameiningu og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt.

Námskeiðið byggir á viðurkenndum og gagnreyndum aðferðum og hefur verið haldið um árabil með viðvarandi mikilli ánægju þátttakenda. Rannsókn á námskeiðinu hefur einnig sýnt jákvæð áhrif á uppeldisaðferðir foreldra . Það er sérstaklega þróað fyrir foreldra barna á Íslandi. Höfundar þess eru sálfræðingurinn dr. Gyða Haraldsdóttir og uppeldisfræðingurinn Lone Jensen.

Námskeiðið er fjögur skipti, tvær klukkustundir í senn.

Um staðnámskeið er að ræða og hámarksfjöldi er 30 þátttakendur.

Hnappurinn hér að neðan mun virkjast þegar næsta námskeið verður auglýst

Fyrir stofnanir og samtök

Leikskólar, grunnskólar, velferðarsvið sveitarfélaga, foreldrafélög og fleiri geta einnig sóst eftir því að námskeið verði haldið á þeirra vegum fyrir foreldra.

Þetta námskeið er einnig til í sérútfærslu fyrir starfsfólk leikskóla. Hægt er að fá sérkjör ef samtímis eru keypt námskeið fyrir foreldra og starfsfólk leikskóla. Námskeiðið er ekki til í sérstakri útgáfu fyrir aðrar fagstéttir.

Áhugasöm geta haft samband í síma 773 3925 eða netfangið raunir@raunir.is.

Fyrirlestrar og vinnustofur fyrir fagfólk

Ég býð upp á fyrirlestra og vinnustofur fyrir fagfólk sem starfar með börnum. Námskeiðin eru fyrst og fremst ætluð starfsfólki í grunnskólum, en hægt er að aðlaga þau að þörfum annarra hópa, svo sem starfsfólks í félagsmiðstöðvum og íþróttaþjálfara. Fræðslan miðar að því að efla faglega færni og veita hagnýta þekkingu sem nýtist í daglegu starfi með börnum. Í boði eru nokkur ólík efni sem fjalla um algengar áskoranir í skóla- og frístundastarfi. Hvert þeirra er í boði bæði sem 90 mínútna fyrirlestur og sem 3–4 klukkustunda vinnustofa. Almennar fyrirspurnir og bókanir fara fram í gegnum netfangið raunir@raunir.is. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir þau efni sem í boði eru.

Gagnreyndar leiðir til hópstjórnunar – Að grípa góða hegðun, hvatningarleikurinn og hegðunarsamningar

Hegðunarvandi er áskorun sem mörg börn glíma við og getur hamlað þeim í námi og þroska. Þetta er vandi sem allt starfsfólk grunnskóla þekkir. Rannsóknir sýna að skýrleiki, fyrirsjáanleiki og samræmi í viðbrögðum starfsfólks eru meðal helstu áhrifaþátta þegar kemur að því að viðhalda og byggja upp góða hópstjórnun í skólum. Í þessum fyrirlestri fær starfsfólk fræðslu um gagnreyndar aðferðir til hópstjórnunar, svo sem um notkun hegðunarsamninga, hvatningarleiksins, skýrra fyrirmæla og jákvæðrar styrkingar. Markmiðið er að kenna starfsfólki að skapa fyrirsjáanlegt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi öllum til heilla.

Við lok námskeiðs býr starfsfólk yfir þekkingu á:

• Einföldum verkfærum til hópstjórnunar sem hægt er að beita strax.

• Hvatningarleiknum og hvernig hann er notaður til að bæta námsástundun.

• Notkun hegðunarsamninga sem lausnamiðað verkfæri í skólastarfi.

Samskipti við forráðamenn – Samvinna, mörk og lausnaleit

Jákvæð samskipti milli heimilis og skóla eru lykilatriði í árangursríku skólastarfi. Samskipti geta hins vegar verið krefjandi, sérstaklega þegar viðkvæm mál eru rædd eða skoðanamunur ríkir. Í mörgum tilvikum eiga einu samskipti heimila og skóla sér stað í tengslum við neikvæða atburði. Til dæmis þegar barn fær áminningu eða neikvæða endurgjöf á hegðun sína. Starf þeirra sem vinna í grunnskólum er bæði fjölbreytt og krefjandi og því getur verið áskorun að finna rými og tíma til að sinna markvissum og uppbyggilegum samskiptum við heimilin þó svo að vilji sé fyrir hendi. Með markvissri nálgun og ígrundun getur starfsfólk skóla eflt samskiptafærni sína, komið í veg fyrir óþarfa ágreining og leyst sjálf úr þeim vanda sem upp kemur. Með því er hægt að byggja upp traust sem eykur líkur á samvinnu og farsælli lausn fyrir velferð nemenda.

Við lok námskeiðs býr starfsfólk yfir þekkingu á:

• Hugtökunum samskipti og samskiptavandi.

• Leiðum til að nálgast viðkvæm samtöl af yfirvegun og virðingu.

• Aðferðum til að efla samvinnu við foreldra og setja mörk í erfiðum aðstæðum.

*Þessum fyrirlestri fylgir skráningarskjal sem auðveldar starfsfólki skóla að eiga markviss, jákvæð samskipti við foreldra.

Börn foreldra með fíknivanda – Hvernig getur skólinn skapað öryggi og stöðugleika?

Rannsóknir sýna að um fjórða hvert barn á náinn aðstandanda með fíknivanda. Börn í slíkum aðstæðum búa við aukna hættu á ofbeldi, vanrækslu, vanlíðan, einangrun, námsörðugleikum og ýmsu öðru. Skólasamfélagið gegnir lykilhlutverki í að veita þessum börnum öryggi, stöðugleika og stuðning. Fræðslan miðar að því að auka þekkingu starfsfólks á fíknsjúkdómnum, áhrifum hans á börn og hvernig hægt er að bregðast við til að styðja við börn í þessari stöðu.

Við lok námskeiðs býr starfsfólk yfir þekkingu á:

• Áhrifum vímuefnanotkunar foreldra á líðan og hegðun barna.

• Hlutverki skólasamfélagsins í því að veita stuðning og stöðugleika.

• Leiðum til að skapa öryggi og traust í samskiptum við börn í viðkvæmri stöðu.

Kvíði barna - Hvernig get ég stutt við barn með hamlandi kvíða?

Kvíði er algengur meðal barna og unglinga og getur haft veruleg áhrif á námsframvindu, líðan og félagslega þátttöku. Starfsfólk skóla er oft fyrstu fagaðilar sem verða varir við kvíðaeinkenni hjá börnum en skortir stundum þekkingu eða verkfæri til að bregðast við. Með því að auka skilning og færni starfsfólks skóla er hægt að bregðast fyrr við, efla virkni og stuðla að vellíðan nemenda.

Við lok fyrirlestrar býr starfsfólk yfir þekkingu á:

• Hugtakinu kvíði og muninum á eðlilegum og hamlandi kvíða.

• Helstu birtingarmyndum kvíða hjá börnum.

• Hagnýtum aðferðum til að styðja við börn með kvíða í skólastarfi og eiga í samskiptum við foreldra.

Um Raunir

sálfræðingur psychologist barnasálfræðingur kvíðameðferð barna sálfræðimeðferð barna sálfræðimeðferð fyrir börn

Mynd: Magnús Óli Sigurðsson

Raunir

Raunir er sjálfstætt starfandi sálfræðiþjónusta sem býður upp á fræðslu og faglega ráðgjöf fyrir þau sem starfa með börnum. Í upphafi felst starfsemin einkum í fyrirlestrum og vinnustofum um andlega líðan, samskipti og stuðning við börn.

Um mig

Ég heiti Guðmundur Kári Þorgrímsson og er stofnandi og eigandi Rauna. Ég er klínískur sálfræðingur með leyfi frá landlækni til að starfa sem slíkur. Hægt er að fletta mér upp í starfsleyfaskrá Landlæknis (smelltu hér). Jafnframt hefur Embætti Landslæknis verið tilkynnt um rekstur Rauna. Upplýsingar um sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk má finna í Rekstraraðilaskrá á vefkerfi Embættis Landlæknis (smelltu hér).

Mín áhugamál eru tungumál, bókmenntir, útivist, hlaup og aðrar íþróttir. Minn áhugi innan sálfræðinnar er velferð barna og forvarnir í starfi með börnum. Þá sérstaklega liggur áhugi minn í almennri lýðheilsu.

Menntun

Ég lauk grunnskóla vorið 2015 og stúdentsprófi frá leiklistarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ vorið 2018. Eftir tvö ár frá námi skráði ég mig í sálfræði við Háskólann á Akureyri haustið 2020 og lauk B.A. gráðu í júní 2023. Þaðan lá leið mín til Háskólans í Reykjavík hvar ég nam klíníska sálfræði til M.Sc. prófs og útskrifaðist sumarið 2025. Vorið 2026 lauk ég við örnám í farsæld barna við Háskóla Íslands. Frá sumri 2026 legg ég stund á nám til doktorsgráðu í menntavísindum við Háskóla Íslands.

Ferilskrá

Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Júní 2026 -

Um þessar mundir stunda ég nám til doktorsgráðu við Menntavísindasvið HÍ. Doktorsrannsóknin mín fjallar um gagnreyndar aðferðir til bekkjarstjórnunar og tengsl þeirra við þroska barna sem og starfsaðstæður kennara á yngsta stigi í íslenskum grunnskólum.

Auðarskóli, Dalabyggð: September 2025 - Ágúst 2026

Frá og með hausti 2025 starfaði ég sem deildarstjóri grunnskóladeildar Auðarskóla sem er samrekinn leik-, tón og grunnskóli í Dalabyggð. Í starfinu fólst fagleg og skipulagsleg forysta í grunnskólastarfi. Meðal annars þróun skólanámskrár, stuðningur við kennara og teymisvinna með skólastjórn, foreldrum og fagaðilum. Ég bar jafnframt ábyrgð á skipulagi kennslu, endurgjafar og skólasóknar, stuðningi við nemendur og þátttöku í stefnumótun og umbótastarfi innan skólans.

Frá 22. september 2025 - 1. janúar 2026 og svo aftur frá 12. febrúar 2026 gegndi ég hlutverki starfandi skólastjóra Auðarskóla.

Keðjan, Reykjavíkurborg: Apríl 2025 – september 2025

Uppeldisráðgjöf og stuðningur fyrir foreldra í uppeldismálum með áherslu á jákvæð samskipti, bjargráð og lausnamiðaða nálgun með gagnreyndum aðferðum. Starfið felur í sér einstaklingsviðtöl, fræðslu og samstarf við fjölskyldur inni á heimili þeirra og samstarf við aðra fagaðila innan þjónustukerfisins.

Fimleikaþjálfari hjá ýmsum félögum: September 2015 - Nóvember 2025

Ég hef unnið sem fimleikaþjálfari hjá ýmsum félögum; Fimleikadeild KA (áður FIMAK); Fimleikadeild Stjörnunnar; og Fimleikadeild Selfoss. Nú síðast var ég meistaraflokksþjálfari hjá Stjörnunni og þjálfaði þar karlaliðið í gólfæfingum.

Starfsnám í barnaþjónustu SÁÁ: Janúar 2025 – maí 2025

Ég var sálfræðinemi hjá barnaþjónustu SÁÁ. Úrræðið þjónustar börn sem eiga nána aðstandendur sem glíma við fíknivanda. Þar er veitt sálfræðimeðferð byggð á HAM sem fræðir börn um fíknsjúkdóminn og miðar að því að efla bjargráð þeirra.

Starfsnám í nemendaþjónustu HR: Ágúst 2024 – desember 2024

Ég var sálfræðinemi hjá nemendaþjónustu HR. Þar var ég með skjólstæðinga í HAM meðferð við þunglyndi, lágu sjálfsmati og einkennum áfallastreitu.

Starfsnám í Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar: Janúar 2024 – mars 2024

Ég var sálfræðinemi hjá Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar. Þar flutti ég 6 vikna námskeið í foreldramiðaðri hugrænni atferlismeðferð fyrir foreldra kvíðinna barna.

Keðjan, Reykjavíkurborg: Júní 2023 – janúar 2024

Ráðgjafi hjá Keðjunni. Verkefnastjóri hjá stöku máli þar sem víðtækur stuðningur var á heimili. Var með mannaforráð og þau verk sem því fylgja (ráðningar, vaktaskipan og verklag). Starfaði einnig við hópastarf fyrir ungmenni.

Hjúkrunarheimilið Fellsendi: Október 2022 – maí 2023

Almenn umönnun á geðhjúkrunarheimili. Þar vann ég með sjúkraliðum, geðhjúkrunarfræðingum og læknum.

Auðarskóli, Dalabyggð: Ágúst 2022 – ágúst 2023

Leiðbeinandi með umsjón í grunnskóla á elsta stigi. Almenn kennsla, foreldrasamskipti, úrlausn ýmissa mála, umsjón með öryggi nemenda, stamstarf með öðrum kennurum, sálfræðingum, sérkennurum, hjúkrunarfræðingum o.fl. fagaðilum innan skólakerfisins.

Fimleikasamband Íslands: Janúar 2020 – janúar 2021

Verkefnastjóri hjá FSÍ. Umsjón með hæfileikamótun drengja með það að markmiði að efla iðkun drengja í hópfimleikum. Taka viðtöl, markaðssetning, myndbandsgerðir, umsjá samfélagsmiðla, skipulagning sýningarferðar hringinn í kringum landið og gerð heimildarmyndarinnar Fimleikahringurinn 2020 sem sýnd var á RÚV.

Hinseginfræðsla hjá Akureyrarbæ: Nóvember 2016 – maí 2022

Ég fræddi 9. bekk í öllum grunnskólum Akureyrar um almenn hinsegin málefni og sagði einnig sögu mína af því að koma út úr skápnum. Ég gegndi þessu starfi frá 2016 til 2022 og fræddi samtals átta árganga. Auk þess að vera hjá Akureyrarbæ fór ég í sjálfstætt verkefni veturinn 2019-2020 til að bæta hinsegin fræðslu á landsbyggðinni. Ég fór í 26 grunnskóla um landið með fræðslu fyrir nemendur, kennara og foreldra.

Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar um þjónustu Rauna eða vilt bóka fyrirlestra er þér velkomið að hafa samband.